verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir góða og áhugaverða spurningu. Við munum þurfa orku og við munum þurfa mun meiri orku. Já, ég er bara til í að við skoðum kjarnorku. Það er bara ekkert að því að skoða það. Ég vil ekki útiloka kjarnorku bara af því að þetta heitir kjarnorka og eins og hv. þingmaður kemur inn á þá er gríðarleg þróun í þessu, ný tækni og mikil reynsla og mörg lönd í Evrópu eru farin að starta kjarnorkuframleiðslu aftur. Það þarf ekkert að vera þannig lagað — raunverulega meðan kjarnorkuslys gerist ekki þá er kjarnorka náttúrlega umhverfisvænasta orkuöflun sem til er. Því held ég að við höfum bara ekkert efni á því að segja bara nei út af orðinu einu saman, en ég ætla ekkert að fullyrða um það að þegar slík skoðun verði farin af stað og komin alla leið að það sé sá orkukostur sem ég myndi velja. En ég myndi vilja hafa val á borðinu, við getum lagt alla möguleika fram. Hvað getum við aflað mikillar vatnsorku? Hvað getum við aflað með jarðvarma og hvað getum við aflað mikillar vindorku? Hver verður svo tæknin í öðru; í sólarorku, í sjávarfallaorku, í heimavirkjunum og lengi mætti telja? Hvaða valmöguleika höfum við þar? Þegar við hefðum þennan valkost varðandi kjarnorku á borðinu og hvað hann myndi þýða þá bara fagna ég því vali. Við höfum ekki efni á því að segja nei við því og það er ekkert að því að setja vinnu í að skoða það.