verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar og ég tek einmitt undir orð þingmannsins, mér finnst við ekki eiga að útiloka neitt. Við eigum að skoða möguleika eins og með kjarnorku og þá dettur mér í hug t.d. Evrópusambandið, mér finnst við eiga að skoða möguleikana og síðan þegar við erum búin að skoða, vega og meta þá getum við tekið ákvörðun um það hvort framtíð okkar sé í Evrópusambandinu eða í kjarnorku eða einhverju öðru. Mér finnst líka þessi nýja tækni í kjarnorkuverum spennandi og eins og þingmaðurinn benti á þá hafa þjóðir eins og frændur okkar og frænkur, Finnar, verið að fjölga sínum kjarnorkuverum. Kjarnorka hefur kannski liðið fyrir eða hún hefur haft slæmt orð á sér. En ég velti fyrir mér, það eina svona neikvæða sem ég veit ekki alveg hvernig við ættum að fara með — segjum að við myndum reisa stórt kjarnorkuver einhvers staðar á Íslandi: Hvað með úrganginn? Hvað með kjarnorkuúrganginn? Hvað eigum við að gera við hann?