156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:53]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gnarr aftur fyrir góða og mikilvæga umræðu hér. Við verðum að velta við öllum steinum. Ég vil byrja á að segja það að ég tel að við höfum skoðað mun meira varðandi Evrópusambandið gagnvart Íslandi og inngöngu þess heldur en nokkurn tímann gagnvart kjarnorkunni. Ég held að sú umræða og sú athugun sé komin mun styttra. Við gengum það langt að senda inn umsókn og þá fundum við alveg fyrir því hvað það þýddi að sækja um í Evrópusambandið. Það hafði strax áhrif á fjárlög á Íslandi og lagasetningu þannig að við erum búin að komast að því af eigin raun að með því að sækja um hjá Evrópusambandinu þá þurfum við að aðlaga okkur að því áður en samningalotunni lýkur. Við getum bara farið til Brussel og lesið reglurnar og séð hvernig hin löndin hafa gert þetta og þá vitum við hvað það þýðir og við höfum reynt það. En það höfum við ekki gert varðandi kjarnorkuna. Ég hef trú á því að þetta sé verkefni sem þau lönd sem hafa nokkur kjarnorkuver og eru að byggja þau upp, séu að vinna að, vinna að úrlausnum og nýsköpun varðandi úrganginn. Ég hef ekki neinar lausnir fram að færa hér en það er nú þekkt að við sendum úrganginn okkar til Svíþjóðar í dag þar sem honum er ýmist brennt eða dreift á engi. Ég hef fulla trú á því að ef við komumst svo langt að byggja kjarnorkuver hér þá finnist lausn á þessu. Ég vil bara aftur þakka hv. þingmanni fyrir að koma með svona uppbyggilega og góða framtíðarhugsun hér í fyrirspurnum.