verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegur forseti. Þegar kemur að þessum málum þurfum við auðvitað að líta til sögunnar. Við verðum að átta okkur á því hvernig við höfum komist í þá stöðu sem við erum í í dag. Ég var að rifja það upp með sjálfum mér áðan þegar við vorum hér á kjörtímabilinu 2009–2013 að þá lagði Landsvirkjun fram skýrslu sem svona að hluta til tók tillit til þeirrar vinnu sem hafði þá verið hjá verkefnisstjórn við rammaáætlun 2, skýrslu sem var með ákveðna valkosti inn í framtíðina. Þar var til að mynda einn valkostur af þremur sem sýndi skipulag á virkjunarröð sem við færum í, nokkrar vatnsaflsvirkjanir, frá þeim tíma sem skýrslan var lögð fram og fram til ársins 2025. Það er sem sagt í dag, eða ég skal ekki segja hvort það var 2030. Þetta voru nokkrar virkjanir á þessum tíma. Þetta voru allt saman virkjunarkostir sem út frá umhverfislegum sjónarmiðum, náttúruverndarsjónarmiðum hefði ekki átt að vera mikill ágreiningur um. Þetta var alveg vandlega valið af hálfu fyrirtækisins.
Ég man alltaf eftir því að á þeim tíma var talið að fimm árum seinna, miðað við það að þessi leið yrði farin, þá var áætlað á verðlagi þess árs að skatttekjur, arður og skatttekjur Landsvirkjunar sem kæmu í ríkissjóð myndu nema á annað hundrað milljörðum kr. Á þeim tíma var Landsvirkjun ekki farin að greiða arð af starfsemi sinni. Þetta var á svipuðum tíma og lögin um rammaáætlun voru sett og á sama tíma og verkefnisstjórn 2 skilaði af sér, eftir ítarlega vinnu, sinni niðurstöðu og tillögum. Formaður í þeirri verkefnisstjórn var Svanfríður Jónasdóttir sem var á sínum tíma þingmaður, m.a. Samfylkingarinnar. Mig minnir að þar hafi verið sjö vatnsaflskostir í nýtingarflokki. Sú verkefnisstjórn fór í gríðarlega miklar kynningarferðir um landið. Fólki, almenningi voru gefin mjög mörg tækifæri til að koma að málum með sínar athugasemdir. Það voru kynningarfundir haldnir úti um allt land þannig að fólk átti mjög auðvelt með að nálgast upplýsingar og kynna sér þessar niðurstöður. Umhverfisráðherra ríkisstjórnar Samfylkingarinnar á þessu kjörtímabili ákvað síðan að senda þessa tillögu til umsagnar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis sem var í lögum um rammaáætlun og það komu inn eitthvað rúmlega 200 umsagnir. Þær voru flestar neikvæðar, enda voru þær að uppistöðu til staðlaðar, staðlað form sem fólk gat sótt sér á netinu og sent inn, margar hverjar frá einhverju fólki úti um allan heim, einstaklingum, auðvitað að einhverju leyti frá samtökum en fjöldinn var þarna, massinn var þarna. Á grundvelli þessara umsagna kaus umhverfisráðherrann að meta það svo og ríkisstjórnin, ríkisstjórn Samfylkingarinnar, á þessum tíma að það yrði að fara í ítarlegri vinnu við þessar tillögur verkefnisstjórnarinnar og það var einn vatnsaflskostur af þessum sjö sem komu inn sem var settur í nýtingarflokk, Hvalá á Vestfjörðum, Hvalá, sem þá skoraði hæst sem óhagkvæmasti virkjunarkosturinn í efnahagslegu tilliti, þ.e. það var langdýrast af öllum virkjunarkostum sem höfðu verið skoðaðir, sem ég held að hafi verið 60, að virkja Hvalá. Það var dýrasta megavattið sem við gátum búið til. Það var, virðulegur forseti, nákvæmlega þess vegna sem Hvalá var sett af þáverandi umhverfisráðherra sem eini valkosturinn í vatnsafli til þess að fara af stað með, vegna þess að það trúði því enginn þá að það yrði nokkurn tímann sú staða uppi í íslensku samfélagi að nokkur myndi fara að virkja Hvalá. Það myndi aldrei borga sig, rafmagnið yrði allt of dýrt, það fengist ekki fyrir það nægjanlegt verð. Það er ekki fyrr en í dag sem það er fyrst að verða hagkvæmt.
Þetta var síðan notað sem ástæða þess þegar við vorum að leggja til breytingar á kjörtímabilinu á eftir um fleiri vatnsaflskosti inn í rammaáætlun, þá var þetta notað sem rök af hálfu Vinstri grænna og hv. þingmanna þeirra og Samfylkingar, að við værum með vatnsaflskost sem enginn færi í, af hverju við værum að þessu. En síðan þegar lagt var af stað með þennan vatnsaflskost stuttu seinna þá komu þessir sömu þingmenn og reyttu hár sitt yfir því að það ætti að fara að virkja á Vestfjörðum, því að þau trúðu því aldrei að það yrði gert.
Það er nauðsynlegt að læra af sögunni, virðulegi forseti, þegar við horfum til framtíðar og sviðsmynd Landsvirkjunar sem ég kom inn á áðan var sett í tætarann. Það varð ekkert úr henni. Það var ekkert unnið með það plagg meira. Vonbrigði verkefnisstjórnarinnar og formanns verkefnisstjórnarinnar á þessum tíma, Svanfríðar Jónasdóttur, og þeirra sem voru búin að leggja á sig þessa miklu vinnu voru gríðarlega mikil. Ég man eftir vonbrigðum hennar, ég fundaði með henni og fleirum um þetta á þeim tíma.
Þetta er ástæðan fyrir því hvar við erum stödd í dag. Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því af hverju við erum stödd þar sem við erum í dag, eins ótrúlegt og það er. Þetta er búið að vera tómt strögl, villandi umræða, almenningur blekktur, nærtækast að vitna hér í forstjóra orkufyrirtækis þar sem Samfylkingin hefur haft forystu undanfarin ár, sem setti á verkefnastopp sem kannski hv. þm. Jón Gnarr man eftir, ég veit það ekki, þegar Bjarni Bjarnason kom hér ítrekað fram og sagði við þjóðina: Það þarf ekki að virkja meira á Íslandi. Þetta var forstjóri eins stærsta orkufyrirtækis landsins. Svona var villt um fyrir almenningi í þessum flókna málaflokki.
Við getum líka tekið dæmi um hvar þetta endar allt saman, af því að þetta endar auðvitað allt saman í því að þessir virkjunarkostir sem umræddir eru verða á endanum virkjaðir. En hvað er þetta búið að kosta okkur? Skýrasta dæmið um þetta er Suðurnesjalína 2 sem núna er komin í framkvæmd hátt í 20 árum eftir að menn hófu vinnuna. Og hver skyldi nú niðurstaðan vera eftir hátt í 20 ára strögl við að leggja nýja flutningslínu á Suðurnesjum? Eftir allan þann kostnað sem er búið að leggja í verkefnið, fyrir utan tapið af flutningi raforku, þá er línan lögð nánast alveg eins og lagt var upp með fyrir 20 árum síðan. Ströglið var til einskis. Þannig verður það auðvitað í þessum virkjunarkostum þegar upp verður staðið.
Það er hægt að taka þá umræðu hérna, sem auðvitað er allrar athygli verð, ekki síst kannski vegna þess úr hvaða ranni hún kemur. Ég held að það þyki fréttnæmt að hv. þm. Viðreisnar, Jón Gnarr, skuli koma hér og leggja það til að við förum í kjarnorku eða vill velta því alvarlega fyrir sér. Ég segi bara: Hvert erum við komin, virðulegi forseti? Hvert erum við komin að þurfa að fara að ræða það í alvöru hvort það sé valkostur að fara í virkjanir eða byggja upp orkuframleiðslu á grundvelli kjarnorku á Íslandi með alla þessa kosti sem við höfum, einhverja hagkvæmustu kosti sem völ er á? Þetta er orðin svona ákveðin „desperation“ ef ég má sletta, virðulegi forseti.
Það er eðlilegt við þessar aðstæður að við spyrjum okkur: Hvernig getum við haldið áfram? Getum við haldið áfram á grundvelli þess kerfis sem við höfum verið að reyna að byggja upp, sem við höfum verið að strögla við núna í meira en áratug eða á annan áratug og varla komist úr sporunum? Það yrði alveg hrikaleg tala ef hún yrði reiknuð út, hver samfélagslegur kostnaður er af þessu. Það mun nema tugum ef ekki hundruðum milljarða á hverju einasta ári, verðmætasköpunin sem hefur tapast, kostnaðurinn við allt þetta kerfi, kostnaðurinn hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum, kostnaður sem er svo fráhrindandi að ekkert venjulegt fyrirtæki eða einstaklingar eða aðrir treysta sér til að fara í þessa vegferð. Þannig erum við búin að koma því fyrir. Þannig getur það ekki verið. Það er komið nóg, þetta er fullreynt. Þetta varðar orðið, eins og hér hefur verið komið inn á, þjóðaröryggi og þjóðaröryggisþátturinn er ekki inni í þessu ferli okkar. Allar þessar breyttu aðstæður, sviðsmyndir sem við stöndum frammi fyrir út frá náttúruvá, út frá ógn í heiminum, allar þessar ógnir sem hafa komið til núna eru miklu skýrari heldur en við höfðum þekkt á þessum tíma. Eftir langan tíma af friði, bæði hjá náttúru og stríðandi þjóðum, þá var þetta ekkert inni í myndinni. Menn töldu ekkert að það þyrfti að taka tillit til þessa þjóðaröryggis. En nú er það hjá okkur eins og hjá öllum öðrum þjóðum auðvitað orðið algjört forgangsatriði.
Í fyrsta sæti þegar kemur að þjóðaröryggi eru orkumál og það er ekki tekið til þess. Það er bara ekki inni í kerfinu okkar að velta því eitthvað fyrir okkur. Þannig að ég held, eins og ég hef svo sem áður komið inn á og þetta verður aldrei hamrað nóg og fleiri hafa svo sem minnst á þetta, að við verðum að sameinast um það, loksins þegar virðist vera orðinn víðtækari samhljómur um þennan málaflokk í þinginu þá þurfum við eiginlega að taka hann út úr pólitískum ágreiningi. Við þurfum að taka þetta þjóðaröryggismál, þetta fjöregg okkar, bara út fyrir pólitíkina. Við þurfum að setjast niður, fólk úr öllum flokkum, koma hér á verkefnaáætlun til næstu tíu ára þar sem við setjum ákveðnar vatnsaflsvirkjanir á kortið með lagasetningu, búum til áætlun, tökum tillit til þess að dreifa þeim um landið, dreifa þeim á milli virkjunaraðila, framkvæmdaraðila, þannig að fleiri geti verið að verki á sama tíma. Greiðum fyrir vindi innan skynsamlegra marka vegna þess að vindurinn, hagkvæmni hans er svolítið háð vatnsaflsvirkjununum, að þetta sé svona þessi sveiflujafnari en er það sem við getum nánast tekið úr hillunni og sett upp á skömmum tíma og mun hjálpa mikið til. Greiðum fyrir því. Greiðum fyrir því að fara í stórkostlega uppbyggingu í flutningskerfinu og á sama tíma og við sameinumst um svona átak þá setjumst við niður og horfum til þess hvernig við ætlum að vinna þessi mál til framtíðar.
En við verðum að gera upp þessa skuld. Þetta á í raun og veru við fleiri málaflokka eins og samgöngumál og ég fagna því sem kom fram í umræðunni um fjármálaáætlun, að menn eru farnir að hugsa um fyrirtæki sem sér um þetta og við förum inn í meira af PPP-verkefnum. Það verður aldrei leyst með öðrum hætti.
Þetta er mín sýn á þetta, virðulegi forseti, og það er ánægjuefni að í þinginu skuli vera áður óþekktur samhljómur og við eigum að nota það tækifæri.