156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:11]
Horfa

Jón Gnarr (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni kærlega fyrir hans ræðu. Ég held að þingmaðurinn hafi verið að vísa til Orkuveitu Reykjavíkur þegar hann vísaði orðum sínum til mín. Ég átti þátt í því að endurreisa Orkuveitu Reykjavíkur með nokkuð skipulögðum hætti. Hún hafði verið gríðarlega illa rekin, alveg gríðarlega, mjög lengi og ég er mjög stoltur af því að hafa átt þátt í þeirri merkilegu endurreisn. Forstjórinn Bjarni Bjarnason átti líka stóran þátt í því sjálfur, enda er Bjarni ekki bara jarðfræðingur, hann er líka verkfræðingur. Hvað hann sagði get ég svo sem ekki svarað fyrir.

Varðandi möguleika í kjarnorku þá langar mig, af því að þingmaðurinn kom inn á þá umræðu, að benda á að í virkjun eins og Búrfellsvirkjun, þessari gömlu nr. 1, er aflgeta upp á 270 MW. Hefðbundið kjarnorkuver getur framleitt 1000–1600 MW til jafns við kannski fjórar til sex venjulegar vatnsaflsvirkjanir. Út frá umhverfissjónarmiðum og öðru, af hverju vill þingmaðurinn alfarið útiloka þennan möguleika þegar aðrir hafa verið opnir fyrir þessu?