156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:13]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Það sannast hið fornkveðna, virðulegi forseti, að neyðin kennir naktri konu að spinna. Ég vil í sjálfu sér ekki útiloka neitt við þessar aðstæður, virðulegur forseti, en það er manni bara svo fjarlægt að láta sér detta þetta í hug. Ég þekki svo sem ekki þessar stærðir. Þegar við fórum af stað í þetta ævintýri sem nýting náttúruauðlinda okkar hefur verið á sviði orkuframleiðslu, bæði á heitu vatni og rafmagni, þá gerðum við okkur grein fyrir því á þeim tíma að það yrði of dýrt fyrir fámenna þjóð að byggja upp iðnað, of áhættusamt, sem gæti nýtt orku á stórfelldum skala. Það var þess vegna sem við Sjálfstæðismenn náðum eftir strögl að fá álver í Straumsvík til Íslands, reglulegan kaupanda sem keypti orku 24 stundir á sólarhring allt árið. Á grundvelli þeirra samninga gátum við byggt alvöruvirkjanir og byggt upp alvörudreifikerfi. Þetta var grunnurinn að því að við gátum byggt dreifikerfi um landið. Ef við hefðum ekki farið þessa leið þá hefðum við þurft að byggja upp eyjakerfi. Þá hefðum við skipt landinu upp í raforkusvæði sem hefðu ekkert verið samtengd með miklu minni virkjunum. Þannig hefur þetta verið, við höfum byggt virkjanirnar sjálf en höfum fengið aðila til að koma inn í iðnaðinn. Það væri okkur svakalega mikil áhætta og þekkingarleysi til staðar í samfélaginu á því að byggja okkar eigin kjarnorkuver en það geta vel verið erlendir aðilar ef menn vilja hleypa þeim inn. Þetta er mér bara svo fjarlægt að ég eiginlega get ekki tjáð mig með eða á móti hugmyndinni, sérstaklega af því að við eigum svo mikið af úrvalsvalkostum sem geta þjónað okkar þörfum um langa framtíð.