verndar- og orkunýtingaráætlun.
Frú forseti. Ég ætla að leggja örfá orð í belg varðandi þetta frumvarp til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, bara svona almennt. Ég ætla að byrja aðeins á því, með leyfi forseta, að lesa upp úr greinargerðinni það sem mér þótti áhugavert varðandi starfshópinn sem skipaður var 2024 til að endurskoða þessi lög:
„Sú gagnrýni sem starfshópurinn hnaut oftast um sneri að miklu leyti að skilvirkni ferlisins, m.a. hversu langur tími hefði í sumum tilvikum liðið þar til niðurstaða hefði fengist í málum sem snúa að orkunýtingu á grundvelli áætlunarinnar. Ítrekað hefði t.d. verið bent á að virkjunarkostir innan rammaáætlunar hefðu verið í allt að níu ár í meðferð hjá opinberum aðilum áður en niðurstaða hefði fengist um það hvort viðkomandi kostur félli í verndar- eða nýtingarflokk. Flestum mætti vera ljóst að slíkar áralangar tafir á niðurstöðu í opinberu ferli væru engan veginn ásættanlegar, óháð því hvort skoðanir kynnu að vera skiptar um hvort tilteknar virkjunarhugmyndir væru raunhæfar eða jafnvel skynsamlegar. Margra ára tafir á niðurstöðu í þessum málum yllu mikilli samfélagslegri óvissu, fjárhagslegu tjóni og gætu haldið annarri landnýtingu, skipulagningu og ákvarðanatöku í fjölmörgum tengdum málum í óvissuástandi á sama tíma. Óháð því hvaða aðferðafræði yrði notuð við ákvarðanatöku um vernd og orkunýtingu landsvæða taldi starfshópurinn nauðsynlegt að sú aðferðafræði sem lögð yrði til grundvallar henni þyrfti ekki einungis að vera faglega vel undirbúin heldur væri einnig þjóðhagslega nauðsynlegt að hún væri jafnframt skilvirk þannig að endanleg niðurstaða fengist innan eðlilegs tímaramma.“
Svo segir síðar, með leyfi forseta:
„Telja verður óheppilegt og í andstöðu við markmið rammaáætlunar að virkjunarkostir, sem gengið hafa í gegnum hið ítarlega mats-, samráðs- og kynningarferli sem lögin mæla fyrir um, séu jafnvel um margra ára skeið með óvissa stöðu um hvort þeir eigi að falla í verndarflokk, nýtingarflokk eða biðflokk. Ekki er óvarlegt að álykta að þessar tafir hafi að miklu leyti verið til komnar vegna þess að virkjunarframkvæmdir hafa verið mjög umdeildar meðal einstakra stjórnmálaflokka sem og landsmanna.“
Og síðar, með leyfi forseta:
„Að teknu tilliti til framangreinds taldi starfshópurinn hægt að gera ýmsar breytingar á ferli rammaáætlunar án þess að draga úr nauðsynlegum faglegum kröfum til að gera það skilvirkara og betra þannig að það svaraði betur því ákalli að ferlið sjálft stæði ekki eðlilegri orkuöflun fyrir þrifum.“
Ég verð að segja, frú forseti, að hún er alveg einkennileg, þessi vegferð stjórnvalda síðustu kannski 15 ár, að lenda í þessum ógöngum, að semja regluverk með þessum gífurlegu ágöllum þannig að þjóðin hefur lent í þessari sjálfheldu, myndi ég segja, í orkumálum sem við erum nú í og er núna, og það ber að þakka, verið að leita leiða út úr, með þessu frumvarpi m.a., sem ég að sjálfsögðu styð heils hugar, sem skref í átt til þess að komast út úr þessari sjálfheldu. Þessi ábyrgð margra aðila, stjórnvalda, í þessum efnum er mikil. Við erum komin á þann stað að hér horfum við fram á orkuskort í raun og veru, hækkandi orkuverð til heimila. Hækkandi orkuverð til framleiðenda, smáframleiðenda aðallega, stendur orðið framleiðslu í landinu fyrir þrifum. Þetta er leið til að komast út úr því. Ég er eiginlega alveg steinhissa á því að það hafi ekki verið stigið skref til baka löngu, löngu fyrr. Það er eiginlega kannski rannsóknarefni af hverju við erum komin á þennan stað eftir öll þessi ár, búið að horfa upp á þetta árum saman og ekkert hefur verið aðhafst í allan þennan tíma. Það er ábyrgðarhluti, frú forseti. Þetta er svona mín hugleiðing um þetta frumvarp. Hvernig við gátum komist á þennan stað að það sé hægt að tefja framkvæmdir sem ganga út á það að afla grænnar orku hér á landi með þessum hætti sem lýst er í greinargerð með þessu frumvarpi er einkennilegt og ábyrgðarhluti.
Það er leitt að hv. þm. Jón Gnarr er farinn úr salnum, ég ætlaði vegna hans hugmynda um kjarnorku að rifja upp hlut sem ég hafði einhvern tímann séð fyrir löngu síðan um hugmyndir um kjarnorkuver á Íslandi. Þær eru ekki nýjar, það eru 65 ár síðan fyrst komu upp hugmyndir um að reisa kjarnorkuver á Íslandi. Það var á þeim tíma sem þetta þótti nýstárlegt og einfalt til orkuöflunar, svo langt síðan. Á sjötta áratugnum komu upp hugmyndir um að reisa kjarnorkuver í Vestmannaeyjum, ekki stórt að vísu, en þetta átti bara að leysa raunverulega orkuvandann í Eyjum. Þá bjuggu þar tæplega 5.000 manns og þetta var talin mjög einföld og sjálfsögð leið til að leysa þann vanda sem þar var í orkuöflun. Fyrirtæki gerðu tilboð í þetta meira að segja, General Electric gerði tilboð í að reisa þar 100–200 MW kjarnorkuver. Það varð ekkert úr þessum hugmyndum eins og þið getið rétt getið ykkur til um. Allar slíkar hugmyndir um að leysa orkuvanda í formi lítilla kjarnorkuvera sem uppi voru á þessum tíma voru svo lagðar til hliðar endanlega 1979 þegar kjarnorkuóhappið varð á Þriggja mílna eyjunni og hafa ekki komið upp aftur fyrr en hv. þm. Jón Gnarr viðraði þær svo eftirminnilega hér áðan.
Það er auðvitað alveg rétt hjá hv. þingmanni að þetta er auðvitað ein leið til orkuöflunar. Þetta er örugg afhending orku. Hins vegar eru ýmsir gallar á þessu að sjálfsögðu, frú forseti. Í fyrsta lagi er það öryggið. Við erum auðvitað á eldfjallaeyju og hér eru tíðir jarðskjálftar eins og við þekkjum hér bara úr sölum Alþingis síðast í gær og eldgos eru tíð og ýmis önnur óáran í náttúrunni sem veldur því að þetta er auðvitað kannski ekki besti staðurinn til reisa kjarnorkuver, a.m.k. ekki á stórum hlutum landsins. Annað er að almenningsálit er mjög neikvætt, a.m.k. á Íslandi, gagnvart kjarnorku eins og við heyrðum hér í þeim viðbrögðum sem urðu við þessum spurningum hv. þingmanns. Það er mjög neikvætt, enda er sá stóri galli á kjarnorkunni að úrgang kjarnorkuvera verður að geyma með virkilega öruggum hætti í þúsundir ára svo hann valdi ekki skaða, frú forseti. Þannig að á meðan við höfum aðgang að ódýrri grænni orku á Íslandi, eins og vatnsaflsvirkjunum og jarðvarmavirkjunum og jafnvel vindorku að einhverju leyti og hugsanlega sjávarorku, ölduorku, þá held ég að við ættum að leggja svona hugmyndir til hliðar í bili, a.m.k. á meðan ekki eru til öruggari leiðir til að geyma eða farga þessum úrgangi. Ég er nú þeirrar skoðunar.
Að svo sögðu held ég að þetta sé orðið ágætt hjá mér hér í kvöld.