156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:46]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Það er orðið ansi langt liðið á kvöldið þannig að ég held ég stytti mál mitt nokkuð. Af því að ég las upp kostina við rammaáætlun áðan þá verð ég að telja upp eitt eða tvö atriði, frú forseti, sem hafa verið gagnrýnd við rammann. Vil ég þar t.d. nefna að fyrir hinn almenna borgara er ferlið ógagnsætt, flókið og tímafrekt og hefur nokkuð vantað upp á tímafresti í ákveðnum þáttum. Síðan hefur nokkur gagnrýni verið uppi um að það sé gert ráð fyrir tvöföldu samráði, eins og ég nefndi áðan, og það hefur valdið misskilningi hjá þeim sem hafa verið að gera athugasemdir við kostina.

Alveg í blárestina langar mig að nefna það sem ég tel í rauninni vera mikinn kost við þetta frumvarp, og hlakka ég til að glíma við það í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Það eru lagðar skýrari línur í skilgreiningu og hugtakanotkun, skýrari kröfur eru í upphafi gerðar til gagna og upplýsinga um virkjunarkosti sem skiptir miklu máli þannig að það komi fram á fyrstu stigum hvaða gögn og upplýsingar eru til um virkjunarkostina. Ferlið verði samfelluverkefni en eigi sér ekki stað eingöngu á fjögurra ára fresti. Núverandi verkefnisstjórn rammaáætlunar hefur fylgt þessu og nú er skýrt kveðið á um það í þessu frumvarpi.

Aukin skilvirkni með fastákveðnum tímafrestum skiptir líka máli. Þá er í rauninni verið að setja tímamælingu á alla þætti rammaáætlunar og skýra nákvæmlega hvernig tímaásinn er gagnvart því að kostir komist til ákvörðunar. Þar er verið að horfa á 24 mánuði plús þannig að það er skýrt afmarkað. Þá er líka skýrari heimild og skylda að afmarka verndarsvæði í áætluninni en áður hefur verið og frestur sveitarstjórna til ákvörðunar um landnotkun er styttur. Það gæti nú reyndar orðið pínulítið erfitt í umræðunni um sveitarfélögin af því að sveitarfélögum er í raun skylt að setja það inn í skipulagsáform sín ef kostur hefur verið settur í nýtingu.

Heimild ráðherra fyrir að veita undanþágur til matsskyldra rannsókna á virkjunarhugmyndum er líka mjög mikilvæg af því að maður sér alveg fyrir sér að jarðvarmaverkefni gæti setið fast í biðflokki af því að ekki er hægt að gera rannsóknir á viðkomandi verkefni.

Þetta er að mínu mati bara ágæt byrjun og ég veit að hv. umhverfis- og samgöngunefnd mun vinna vel í þessu máli. Við hlökkum til áskorunarinnar og ég minni þingmenn á að ákvörðun í þessu máli verður tekin hér í þingsal.