156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

mannabreytingar í nefndum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Flokks fólksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Ragnar Þór Ingólfsson taki sæti sem varamaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Guðmundar Inga Kristinssonar og sem varamaður í umhverfis- og samgöngunefnd, einnig í stað Guðmundar Inga Kristinssonar.

Jafnframt að Sigurður Helgi Pálmason taki sæti sem varamaður í atvinnuveganefnd í stað Guðmundar Inga Kristinssonar og sem varamaður í velferðarnefnd í stað Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur.

Að lokum að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir taki sæti sem varamaður í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins í stað Guðmundar Inga Kristinssonar. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.