156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 222, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni, og á þskj. 270, um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu, frá Degi B. Eggertssyni.