samsköttun hjóna og sambýilsfólks.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin hefur lagt til að samsköttun hjóna og sambýlisfólks verði afnumin. Þetta lítur út fyrir að vera lagatæknilegt atriði en í reynd hefur það djúpstæð áhrif á fjölskyldur um land allt. Þeir sem lenda í tímabundnu ójafnvægi í tekjum, t.d. vegna náms, veikinda eða barnauppeldis, munu nú greiða hærri skatta, einmitt þegar svigrúmið er minnst. Þegar annað foreldrið neyðist til að vera heima með barn vegna skorts á leikskólaplássi, þegar foreldri er í fæðingarorlofi eða þegar par skiptir með sér ábyrgð og annað er í námi þá hækkar skattbyrði heimilisins. Það gerist nákvæmlega þegar tekjurnar eru minnstar og útgjöldin eru mest. Samsköttun er ekki bara skattalegt tæki, hún er viðurkenning á því að heimili starfi sem ein heild, að tekjur séu sameiginlegar og ábyrgðin líka. Með því að afnema hana er verið að rjúfa þessa heild í augum skattkerfisins og gera lífið erfiðara fyrir heimili sem reyna að takast á við aðstæður sem þau ráða oft ekki við.
Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Hvernig getur verið sanngjarnt að ríkið taki stærri sneið af tekjum heimilanna nákvæmlega á þeim tímapunkti þegar þau hafa minnst milli handanna? Ef það er markmið ríkisstjórnarinnar að styrkja fjölskyldur, hvers vegna er hún þá að refsa þeim fyrir nákvæmlega það að vera fjölskylda?