156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

samsköttun hjóna og sambýlisfólks.

[10:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Nú er þessi breyting þannig að hún á við um nýtingu lægri skattþrepa fyrir hjón þar sem annar aðili er í hærra skattþrepi en hinn. Fram fór ítarleg greining í fjármálaráðuneytinu á því hvernig þessi breyting legðist á tekjudreifinguna og tilfellið er að þau dæmi sem hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir nefnir hér um þá sem eru líklegir til að verða fyrir áhrifum af þessari breytingu eru í engu samræmi við þau gögn sem fjármálaráðuneytið hefur um það hverjir hafa notið þessara réttinda. Það að greiða skatta er einstaklingsbundið og áhrif á þá hópa sem hv. þingmaður nefnir eru minni háttar.