156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

samsköttun hjóna og sambýlisfólks.

[10:35]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Svar ráðherra breytir ekki því sem blasir við, að með því að afnema samsköttun er verið að auka skattbyrði fjölskyldna í landinu einmitt þegar þær standa veikt. En spurningin snýst ekki bara um skattalega útfærslu. Hún snýst um ábyrgð, um það hver eigi að bera kostnaðinn þegar stjórnsýslan bregst. Þegar foreldrar neyðast til að vera heima með börn vegna skorts á leikskólaplássi þá er það ekki einkamál fjölskyldunnar. Það er bein afleiðing af stefnu og stjórnleysi. Flokkar innan þessarar ríkisstjórnar, ekki síst Samfylkingin og Viðreisn, hafa átt sæti í borgarstjórn Reykjavíkur í rúman áratug þar sem leikskólavandinn er orðinn langvinnur og djúpstæður. Sama fólk og hefur ekki getað tryggt leikskólapláss ætlar nú að hækka skatta á þau heimili sem neyðast til að finna lausnirnar sjálf. Það á að taka meira af fjölskyldum sem sýna ábyrgð, sem reyna að koma hlutunum í lag þrátt fyrir kerfisgalla sem þær báru ekki ábyrgð á.

Því spyr ég hæstv. ráðherra aftur: (Forseti hringir.) Er þetta virkilega stefna ríkisstjórnarinnar, að þegar stjórnsýslan bregst þá borgi fjölskyldurnar brúsann, að vanræksla yfirvalda verði að tekjustofni fyrir ríkissjóð?