156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

samsköttun hjóna og sambýlisfólks.

[10:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir ítrekaða spurningu en ítreka þá jafnframt svarið. Þessi túlkun hennar á áhrifum þessara breytinga er í engu samræmi við mat fjármálaráðuneytisins og skattyfirvalda á því hverjir verða fyrir áhrifum. Ég skil því ekki alveg þessa tengingu sem hv. þingmaður býr hér til.