tollur á íslenskar útflutningsvörur til Bandaríkjanna.
Virðulegi forseti. Í gærkvöldi tilkynnti Bandaríkjaforseti um nýja tolla á innflutningsvörur til Bandaríkjanna. Lágmarkstollur upp á 10% skyldi lagður á öll ríki, þar á meðal Ísland. Vinaþjóðir okkar sleppa margar því miður ekki jafn vel. Bandaríkjaforseti boðaði 15% af toll á vörur frá Noregi og 20% á öll Evrópusambandsríki, þar á meðal Norðurlandaþjóðirnar Danmörku, Svíþjóð og Finnland. Sviss og Liechtenstein, hinar EFTA-þjóðirnar tvær, fá á sig yfir 30% toll. Ísland sleppur betur en flestar vinaþjóðir, frú forseti. Velta má fyrir sér hvort það sé einmitt vegna þess að Ísland hefur lagt kapp við að stunda opin viðskipti við umheiminn. Litla opna hagkerfið Ísland á enda allt sitt undir verðmætasköpun og utanríkisviðskiptum.
Ég vil spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hverjar hann telji skýringarnar á því að Ísland sleppur svo vel, ef svo má að orði komast, frá boðuðum tollum Bandaríkjaforseta.