156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

tollur á íslenskar útflutningsvörur til Bandaríkjanna.

[10:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir stórgóða spurningu og málefnalega. Það er að vísu í fyrsta lagi erfitt að spá fyrir um það hvernig þessar ákvarðanir eru nákvæmlega teknar. Það hefur verið nokkur óvissa um hverjar þær yrðu. En sennilegast er að viðskiptahalli Íslands gagnvart Bandaríkjunum sé nærtækasta skýringin. Það er markmið þessara aðgerða að draga úr viðskiptahalla Bandaríkjanna og það myndi eðlilega skjóta nokkuð skökku við að ráðast á þau hagkerfi sem ekki leggja til hans.