afgreiðsla og áhrif breytinga á lögum um veiðigjald.
Frú forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra. Fyrirspurnin varðar meðferð þess máls sem nú er að ljúka umsögn í samráðsgátt stjórnvalda og varðar veiðigjöld. Hæstv. ráðherra hefur fært rök fyrir því að þetta sé skynsamleg leið, sem ég hef nú efasemdir um. En mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hans til málsmeðferðarinnar hingað til. Umsagnarfrestur er að renna út í dag. Mér sýnist á fréttum að SFS, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, hafi tilkynnt að þau treysti sér ekki til að skila inn umsögn á þessum skamma tíma sem gefinn var og eru SFS þó, að því er virðist af frumvarpsdrögunum, eini aðilinn sem eitthvert samráð var haft við. Þannig að maður getur ekki annað en vorkennt sveitarfélögunum og sérstaklega þeim sem eiga mikið undir hvað sjávarútveginn varðar.
Mig langar til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Telur hann þennan þrönga tímaramma, þetta þrönga svigrúm sem hagaðilum er gefið til að veita umsögn um þetta risastóra mál, forsvaranlegan? Hvað orsakar þennan mikla flýti, að það sé gefinn umsagnarfrestur sem beinlínis má halda fram að standist ekki þær reglur sem þessa þætti varðar? Þetta er fyrri spurningin. Hver er afstaða og hver er skýring hæstv. fjármálaráðherra, sem ég tel mig vita að vilji vanda sig og vera faglegur í sínum störfum, á þessum mikla asa sem öll sveitarfélög, held ég, sem hafa tjáð sig um þetta segja að sé óraunhæfur gagnvart því að leggja fram forsvaranlega umsögn? Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, sem eru þó eini aðilinn sem virðist hafa verið rætt við við undirbúning málsins, treysta sér ekki til að skila inn umsögn í dag og þar fram eftir götunum. Hvað skýrir þetta?
Hitt atriðið sem mig langar að biðja hæstv. ráðherra til að koma inn á er: Telur hæstv. ráðherra að þessi ákvörðun, verði hún leidd í lög eins og fyrir liggur í frumvarpsdrögunum, telur hæstv. ráðherra að sú breyting verði til þess að auka eða hækka heildarskattspor sjávarútvegsins, láta það standa í stað eða minnka það?