afgreiðsla og áhrif breytinga á lögum um veiðigjald.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir spurninguna. Nú á þetta mál eftir að fara í væntanlega líflega umræðu hér inni í þinginu og meðferð nefnda þannig að það er ekki eins og það sé þannig að ekki verði hlustað á athugasemdir eða ábendingar þeirra sem á þessu máli hafa skoðun áður en það verður afgreitt frá Alþingi sem lög, þannig að umsagnartíminn er í samræmi við það sem hefð er fyrir. Ég tel þess vegna að hann sé ekkert óeðlilegur og meðferð málsins að sjálfsögðu ekki lokið.
Varðandi heildarskattsporið: Það gætir örlítils misskilnings þegar rætt er um gjöld og álögur, að það eina sem skipti máli sé hvort eitthvað hafi neikvæð áhrif eða ekki. Í minni ágætu fræðigrein hagfræðinni er það almennt viðurkennt, með raunar bara með einni undantekningu, að áhrif gjaldtöku ríkisins og skatta séu að jafnaði neikvæð. Það eru hins vegar einhver sameiginleg verkefni sem við þurfum að fjármagna. Við erum sammála sem samfélag um að við þurfum löggæslu, við þurfum heilbrigðiskerfi, við þurfum menntakerfi. Þá er þetta ekki spurningin sem skiptir máli heldur er spurningin sem skiptir máli þessi: Hvaða skattar hafa minnst neikvæð áhrif, hvaða gjaldtaka hefur minnst neikvæð áhrif á samfélagið? Þar er það samdóma álit allra fræðimanna og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins m.a. og annarra sambærilegra aðila að auðlindagjöld séu þau gjöld sem hafi minnst neikvæð áhrif.