156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

afgreiðsla og áhrif breytinga á lögum um veiðigjald.

[10:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra fór þarna eins og köttur í kringum heitan graut. Ég mun bara hvetja hann til þess að koma í seinna svari og svara spurningunni: Telur hæstv. ráðherra að heildarskattspor sjávarútvegsins hækki, lækki eða standi í stað vegna þessarar tilteknu ákvörðunar, verði hún leidd í lög eins og hún liggur fyrir í frumvarpsdrögunum? Síðan langar mig hér, þó að tíminn sé stuttur, að spyrja hæstv. ráðherra út í það hvort hann líti svo á að tekjur af þessu veiðigjaldi verði einhvers lags nýr eyrnamerktur skattstofn. Það er búið að veifa þessu sem einhvers lags dúsu gagnvart landsbyggðinni, að þar fái menn vegi í staðinn fyrir auðlindagjaldið sem á að bæta á sjávarútveginn. Nú er sjávarútvegurinn að sirka 80% til staðsettur á landsbyggðinni. Er þetta til samræmis við lög um opinber fjármál, sem ég veit að hæstv. ráðherra þekkir ágætlega, að eyrnamerkja gjaldtöku sem þessa til ráðstöfunar til tiltekinna verkefna? Minn skilningur er að svo sé ekki en mér þætti vænt um að hæstv. ráðherra leiddi okkur það fyrir sjónir ef það er misskilningur hjá mér að eyrnamerktir tekjustofnar hafi verið aflagðir með lögum um opinber fjármál hér á sínum tíma.