156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

afgreiðsla og áhrif breytinga á lögum um veiðigjald.

[10:48]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans spurningu og biðst velvirðingar á því að hafa ekki svarað skýrt, matið er að heildarskattspor hækki. Varðandi eyrnamerkta skatta þá er það alveg hárrétt hjá þingmanninum að samkvæmt lögum um opinber fjármál eru engir eyrnamerktir skattar. Reynsla okkar af þeim var frekar slæm. Hitt er annað mál að svigrúm ríkisins til að takast á við ófyrirséðan kostnað er mjög takmarkað og það er innviðaskuld sem við tökum við, þessi ríkisstjórn, sem við vitum, og ég tel að sátt sé um það í þessum þingsal, að þarf að takast á við. Þetta veiðigjald býr til svigrúm og hugmyndin er að nota það svigrúm í þessar fjárfestingar.