156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

markmið ríkisstjórnarinnar um fjölgun hjúkrunarrýma.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar spurningu sem raunar hefði átt að fara til hæstv. félagsmála- og húsnæðisráðherra en látum það liggja milli hluta. Það er uppsafnaður liður, sem sagt uppsöfnuð fjárfestingarframlög í þessum lið, sem hefur ekki tekist að koma út á undangengnum árum af ýmsum ástæðum. Hv. þingmenn kannast sjálfsagt við þann samning sem ríkið gerði við sveitarfélögin um að færa þennan málaflokk til ríkisins. Sá samningur var ekki síst gerður vegna þess að fyrra fyrirkomulag gerði ráð fyrir framlagi frá sveitarfélögunum, bæði í formi fjármagns og í formi gatnagerðargjalda sem voru felld niður. Hvort tveggja hafði haft tilhneigingu til að tefja ákvarðanir og slá þeim á frest. Það var þess vegna orðin mikil uppsöfnuð þörf. Með þessum uppsöfnuðu fjárfestingarframlögum og þeim viðbótum sem eru í fjármálaáætlun teljum við að það sé raunhæft að ná markmiðum um nægilegan fjölda hjúkrunarrýma.