markmið ríkisstjórnarinnar um fjölgun hjúkrunarrýma.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar spurningu. Ég dáist nú nokkuð að þeirri yfirsýn sem hún telur mig hafa yfir rekstur hins opinbera, ef hún heldur að ég sé með það á hreinu hvaða samningar eru í vinnslu hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum, og ég leyfi mér þess vegna að benda henni á að senda inn um það fyrirspurn sem hefði verið hin eðlilega leið. En eins og ég vék að áðan er mjög mikið uppsafnað á þessum lið. Leiguleiðin er ein af leiðunum sem eru á borðinu um það hvernig verður farið í þessa uppbyggingu. En það sem bæði ég og ríkisstjórnin, og þó sérstaklega hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, erum sammála um er að hér þarf að lyfta grettistaki.