156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[10:55]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég átti orðastað við hæstv. forsætisráðherra hér í síðasta fyrirspurnatíma á mánudaginn, um afsögn þáverandi mennta- og barnamálaráðherra. Það kom mér á óvart að hæstv. forsætisráðherra gat engu svarað um ástæðu afsagnarinnar. Helst var á henni að skilja að það hefði verið undarlegt að ráðherrann fyrrverandi hefði reynt að ná tali af manneskju úti í bæ sem hafði uppi hótanir gagnvart henni vegna persónulegra mála. Varla getur það nú samt hafa talist glæpurinn. Þess utan kveinkaði hæstv. forsætisráðherra sér undan spurningunni yfir höfuð og jafnvel tóni í spurningunni, eins og hún orðaði það.

Ég hef fulla trú á því og veit að hæstv. félagsmálaráðherra hefur mun breiðara bak en hæstv. forsætisráðherra, svo ég ætla að leyfa mér að eiga orðastað við hæstv. félagsmálaráðherra um þessa afsögn sem hefur verið lýst, þann dag sem hún sagði af sér á Bessastöðum, með þeim hætti, m.a. af hæstv. dómsmálaráðherra, að fyrrverandi ráðherra hafi þar með axlað ábyrgð. Og ég hlýt að spyrja og spurði hæstv. forsætisráðherra og fékk ekki svar: Axlað ábyrgð á hverju? Getur hæstv. félagsmálaráðherra upplýst þingheim um það á hverju ráðherrann hafði axlað ábyrgð? Nú, þegar RÚV hefur leiðrétt sína fyrstu frétt af þessu máli og hæstv. félagsmálaráðherra reyndar sagt líka í vikunni að þetta hafi verið stormur í vatnsglasi, sem ég er sammála, hlýtur að vera réttmætt að óska eftir svörum frá hæstv. félagsmálaráðherra, formanni Flokks fólksins, samherjaráðherranum fyrrverandi í pólitík, um það af hverju hæstv. félagsmálaráðherra hafi ekki staðið með ráðherra sínum í þessum stormi í þessu vatnsglasi? Sér hæstv. félagsmálaráðherra eftir því að hafa ekki gert það? Hvers vegna feykti stormurinn í vatnsglasinu þessum ráðherra úr embætti?