156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[10:57]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir þessa fyrirspurn. Jú, ég stóð algerlega í báða fætur með hv. þm. Ásthildi Lóu Þórsdóttur, virti algjörlega hundrað prósent hennar vilja, kom til móts við hana eins og við gerðum öll og gerum öll af öllu hjarta. Þegar hún í rauninni tekur þá ákvörðun að vilja ekki — og það er áður en RÚV biðst afsökunar en það er vitað að þarna er verið að koma með eitthvað sem enginn vissi raunverulega hvað var — þá leið Ásthildi Lóu þannig að hún bara treysti sér ekki til þess og vildi ekki á neinum tímapunkti að öll þau góðu verk sem hún er búin að vera að setja af stað í mennta- og barnamálaráðuneytinu og þau góðu verk sem hún vissi að ríkisstjórnin er að vinna, hún vildi ekki að öll fjölmiðlun og öll umræða hér, eins og virðist ætla að hanga hér inni í hinum háa sal Alþingis endalaust, hún vildi engan veginn að hún og hennar persónulega líf tæki allt sviðið. Hún var frábær ráðherra og við vitum að hún er bara að hefja sinn pólitíska feril og hún mun koma grjóthörð til baka sem þingmaður. Hvenær það verður get ég náttúrlega ekki sagt en við hlökkum til að taka á móti Ástu Lóu, eins og við köllum hana. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen aftur fyrir hennar mikla áhuga á því hvernig stóð á því að Ásthildur Lóa tók þá ákvörðun að segja af sér. En ég ítreka: Ég stóð með henni alla leið. Þetta var hennar ákvörðun. Ég tek ekki ákvarðanir fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands, hvort heldur sem formaður Flokks fólksins eða sem félags- og húsnæðismálaráðherra.