156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[10:59]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hæstv. félagsmálaráðherra heggur í sama knérunn og hæstv. forsætisráðherra og svaraði í engu spurningu minni: Ábyrgð á hverju axlaði fyrrverandi ráðherra, eins og hæstv. dómsmálaráðherra komst að orði, að hún hafi axlað ábyrgð? Ábyrgð á hverju? Var þetta ekki bara þannig að það var ríkisstjórnin sjálf sem hræddist fjölmiðlaumfjöllunina um persónuleg mál ráðherrans en ekki ráðherrann fyrrverandi, sem vel að merkja hefur tjáð sig mjög ítarlega um sín persónulegu mál eftir að hún sagði af sér. Og í stað þess að standa með ráðherranum gegn hótunum og afarkostum utan úr bæ þá kusu valkyrjurnar svonefndu að fórna ráðherra sínum. Telur hæstv. félagsmálaráðherra það hafa styrkt stjórnarsamstarfið að forystumönnum ríkisstjórnarinnar hafi ekki tekist að verjast þessari hótun utan úr bæ um persónuleg málefni ráðherrans öðruvísi en þannig að ráðherrann er látinn taka pokann sinn og þessi fyrrverandi samstarfsmaður í ríkisstjórn er kjöldreginn í fjölmiðlum um allan heim. Eru þessi málalok til að styrkja tiltrú almennings á stjórnmálum á Íslandi? Er þessi afsögn ráðherrans kannski dæmi um þessa röggsemi sem ríkisstjórnin segist hafa að leiðarljósi í sínum störfum?