156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

afsögn mennta- og barnamálaráðherra.

[11:00]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðari fyrirspurn. Axla ábyrgð á hverju? Ég er eiginlega að verða ekki bara orðlaus heldur hálfhauslaus yfir þessum áhuga sem hv. þingmaður virðist hafa á því dapra máli sem þarna átti sér stað. Það er engu líkara í öllum hennar sleggjudómum en að hún hafi setið þann fund sem átti sér stað þegar við vorum að haldast í hendur og reyna að takast á við þetta og vissum ekki í rauninni hvað koma skyldi. Ég veit það ekki, hún er kannski með einhverja spæjarastarfsemi þarna inni í fundarherberginu þar sem við vorum og getur þá kannski bara upplýst okkur, hv. þingmaður, um hvað raunverulega þar fór fram. En ég verð að segja það, mér finnst það frekar neikvætt og niðurlægjandi fyrir viðkomandi að koma hér með sleggjudóma um eitthvað sem hefði verið, var og var hugsanlega sagt því að ég held að hv. þingmaður hafi bara akkúrat ekki hugmynd um það. (Gripið fram í: Svaraðu því þá.)