156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

tilhögun umræðu um fjármálaáætlun.

264. mál
[11:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Í dag hefst fyrri umræða um fjármálaáætlun 2026–2030. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar sem stendur í dag og á morgun. Umræðan hefst með framsögu fjármála- og efnahagsráðherra og verði rýmri andsvararéttur við ræðu ráðherra, þ.e. tvær mínútur í fyrra og seinna sinn. Á eftir framsögu ráðherra munu talsmenn allra þingflokka taka til máls, einn frá hverjum þingflokki. Venjulegar ræðutímareglur gilda og andsvör verða leyfð við ræður talsmanna. Að lokinni framsögu ráðherra og ræðum talsmanna munu fagráðherrar taka þátt í umræðunni. Rúm klukkustund er áætluð fyrir hvern ráðherra og málaflokka hans. Við lok umræðunnar í dag verður málinu frestað og umræðunni fram haldið á morgun þegar fagráðherrar halda áfram að gera grein fyrir sínum málaflokkum.