156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Hún, ásamt þeirri fjármálastefnu sem var lögð fyrir Alþingi í síðustu viku, felur í sér meginmarkið og áherslur sem ríkisstjórnin hefur sett sér til næstu ára.

Stefnumótun, áætlun og skipulag opinberra fjármála til næstu fimm ára er umfangsmikið verkefni og háð mörgum óvissuþáttum sem geta sett strik í reikninginn. Það kennir sagan okkur vel og lítið sýnishorn af slíku fengum við einmitt fyrr í þessari viku þegar enn gaus á Reykjanesi. Öll ættum við að vera sammála um að fjármál ríkisins þurfi að vera vel í stakk búin til að mæta áföllum af festu og án þess að ráðast þurfi í mikla skuldasöfnun, langvarandi hallarekstur og/eða harðan niðurskurð til annarra verkefna. Þessi fjármálaáætlun er einmitt fram til að ná þeim meginmarkmiðum. Það jaðrar við að þurfi að stíga inn á svið sagnfræðinnar til að rifja upp hvenær ríkissjóður var síðast rekinn með afgangi. Vissulega á það sínar skýringar og það væri ósanngjarnt að minnast ekki á þær. Samstaða var um að beita ríkisfjármálum til að draga úr högginu vegna heimfaraldurs kórónuveirunnar og að sama skapi eru útgjöld ríkissjóðs vegna jarðhræringa á Reykjanesi að stórum hluta óumflýjanleg.  

Forseti. Það vill þó gleymast að ríkissjóður var einnig rekinn með halla árið 2019, áður en faraldurinn hófst snemma á árinu 2020. Þannig var minna borð fyrir báru þegar á þurfti að halda. Staðan núna er sú að skuldir ríkissjóðs eru miklar og fara vaxandi ef ekkert verður að gert. Þetta er það sem blasir við þrátt fyrir góðan vöxt hagkerfisins og auknar tekjur ríkissjóðs á undanförnum árum. Vandamálið hefur orðið til vegna þess að ríkisútgjöld hafa vaxið langt umfram það sem er sjálfbært. Á sama tíma hafa skuldir aukist með tilheyrandi vaxtakostnaði. Frá þessu ástandi ætlum við að hverfa og ná jafnvægi í fjármálum ríkisins og reka ríkissjóð án halla þegar á árinu 2027 og hið opinbera í heild á árinu 2028. Sömuleiðis byrjum við á að draga úr skuldum.  

Forseti. Í þessu ljósi ber að skoða nýmæli sem við kynnum til sögunnar við gerð þessarar fjármálaáætlunar. Í fyrsta lagi er það ný stöðugleikaregla sem við bætum í regluverkið sem gildir um opinber fjármál. Nýja reglan er mikilvægt verkfæri sem verður beitt til að auka jafnvægi milli efnahagslegs stöðugleika og sjálfbærni opinberra fjármála. Reglan takmarkar vöxt ríkisútgjalda við það sem samrýmist vaxtargetu hagkerfisins til lengri tíma og skapar með því meiri samfellu í opinberum fjármálum, dregur úr sveiflum og eykur yfirsýn yfir það sem fram undan er. Á mannamáli má segja að hún girði fyrir þá freistni stjórnvalda að eyða því sem í kassann kemur á þensluskeiði en búi þess í stað í haginn svo að hægt sé að grípa til viðbragða þegar áföll verða eða verulega harðnar í ári og tekjustofnar dragast saman. Raunvexti ríkisútgjalda eru settar skorður við 2%, að teknu tilliti til tekjuráðstafana, sem geta eins og gefur að skilja verið hvort heldur til hækkunar eða lækkunar, en nær ekki til útgjalda á borð við fjárfestingar, vexti og lífeyrisskuldbindingar. Í öðru lagi er breyting frá fyrri fjármálaáætlunum sem felur í sér að mun lengra er gengið í gerð hreinna rammafjárlaga en áður hefur tíðkast. Ríkisstjórnin kom sér saman um almennan útgjaldaramma og tók í framhaldi ákvörðun um hvernig hann skiptist milli einstakra málefnasviða. Það er síðan ráðherra hvers málefnasviðs að ákveða nánari útfærslu síns ramma. Hún birtist svo í fjárlögum að hausti.  

Forseti. Með þessu móti er einstökum ráðherrum fengið aukið svigrúm til að forgangsraða fjármunum til þeirra verkefna sem þeir telja brýnust og eftir atvikum skapa svigrúm fyrir nýjar áherslur með því að draga úr eða hætta öðrum verkefnum í staðinn. Þetta breytta vinnulag er liður í að tryggja aukna festu í fjármálastjórn hins opinbera og ýta um leið undir sífellt endurmat allra verkefna. Staða efnahagsmála og þeir áhrifaþættir sem endurspeglast í háum vöxtum nú um stundir eru eindregin rök fyrir varfærinni ríkisfjármálastefnu. Aðhald í ríkisfjármálum styður beinlínis við lífskjör heimilanna en ekki öfugt. Mikilvægt er að nýta tækifærið næstu misseri til að efla styrk ríkissjóðs verulega. Ábyrg fjármálastefna styður við lækkun verðbólgu og vaxta. Hlutfall opinberra skulda af landsframleiðslu er nú nærri níu prósentustigum yfir lögbundnu hámarki laga um opinber fjármál. Vaxtagjöld á skuldum ríkisins eru há í alþjóðlegum samanburði. Segja má að þessi vextir séu hálfgerðir blóðpeningar og öll getum við tekið undir að það finnast betri not fyrir skattfé almennings en að greiða þessa háu vexti. Hér er sannarlega verk að vinna.  

Forseti. Afgangur af rekstri ríkissjóðs verður stigvaxandi á tímabili fjármálaáætlunar, en bætt afkoma verður öðru fremur drifin af betri undirliggjandi rekstri. Frumjöfnuður verður jákvæður um 1% af vergri landsframleiðslu á yfirstandandi ári en um 1,8% af vergri landsframleiðslu á árinu 2030. Að viðbættum vaxtajöfnuði gerir áætlunin ráð fyrir að halli á heildarafkomu nemi 0,6% af vergri landsframleiðslu á þessu ári en að hann verði orðinn lítillega jákvæður árið 2027. Á lokaári tímabilsins, árið 2030, er áætlað að afgangur af heildarjöfnuði muni nema 0,4% af vergri landsframleiðslu. Jákvæð afkomuþróun ríkissjóðs samhliða aukinni verðmætasköpun og vaxandi landsframleiðslu stefnir allt að sama marki, að lækka skuldahlutfall ríkisins.   Samkvæmt skuldareglu laga um opinber fjármál verða skuldir ríkissjóðs við lok yfirstandandi árs 31,8% af vergri landsframleiðslu og er áætlað að þær lækki um nærri heilt prósentustig fram til ársins 2030 þegar skuldahlutfallið mun standa í 31% af vergri landsframleiðslu.

Forseti. Það er engin tilviljun að eitt fyrsta verk þessarar ríkisstjórnar var að fá almenning, stjórnkerfið og atvinnulíf að borðinu til að upphugsa leiðir til umbóta og hagræðingar í opinberum rekstri. Ríkisútgjöld eru nær hvergi hærra hlutfall landsframleiðslu meðal þróaðra ríkja en einmitt á Íslandi og því eftir miklu að slægjast að nýta þá fjármuni betur.  

Forseti. Útgjaldavöxtur á tímabili fjármáláætlunar verður að jafnaði 1,6% að raunvirði á ári og það er töluvert undir hámarki stöðugleikareglunnar. Aukinn agi í útgjaldavexti kallar á bætta nýtingu fjármuna ríkissjóðs en ekki síður skýra forgangsröðun til þeirra verkefna sem stjórnvöld telja brýnust. Hér kemur til skjalanna hin eilífa áskorun skortsins, að ekki er hægt að ráðast í öll verkefni, sama hversu góð þau eru í grunninn, heldur verður að forgangsraða þeim takmörkuðu fjármunum sem eru til skiptanna í það sem mestu skilar og breiðust sátt er um. Það er verkefni ríkisstjórnar hvers tíma.  

Forseti. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar er skýr í útgjaldarömmum fjármálaáætlunar. Áhersla er lögð á að efla grunnstoðir samfélagsins og því rennur stærstur hluti aukinna fjárveitinga til félags-, heilbrigðis- og samgöngumála. Í öllum þessu málaflokkum eru fyrir dyrum miklar áskoranir, ólíkar að mörgu leyti en að hluta knúnar áfram af þeim meginkröftum sem felast aukinni eftirspurn eftir þjónustu samhliða fjölgun íbúa og breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar. Heilbrigðismál eru stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs, til málaflokksins rennur þriðjungur ríkisútgjalda. Þrátt fyrir þetta umfang verður hlutfallsleg aukning til málaflokksins mest, ef undan eru skilin útgjöld til utanríkis- og varnarmála. Auk þess að bregðast við miklum kostnaðarauka sem leiðir bæði af breyttri aldurssamsetningu og þeim breytingum sem verða á örorkulífeyriskerfinu 1. september næstkomandi munu stjórnvöld lögfesta tengingu bótafjárhæða við launavísitölu. Samgöngumál eru einnig fyrirferðarmikil í þessari fjármáláætlun, sem gerir ráð fyrir verulegri fjárfestingu í innviðum, ekki síst á sviði samgangna. Þrátt fyrir umtalsvert aukin framlög til samgöngumála er svigrúm til stórframkvæmda á grundvelli beinna ríkisframlaga takmarkað vegna þröngrar stöðu ríkissjóðs. Leita þarf nýrra leiða til að geta tekist á við stærri innviðaverkefni og er sú vinna hafin.  

Forseti. Fjárfestingarstig verður yfir meðaltali samanborið við tímabilið frá 2011–2025 eða ríflega 2% af vergri landsframleiðslu. Stærsta einstaka fjárfestingaverkefnið er bygging nýs Landspítala en einnig hefjast framkvæmdir við nýtt fangelsi og húsnæði vegna öryggisvistunar, svo dæmi séu tekin. Á tekjuhlið ríkisfjármála verður lögð áhersla á að styrkja grunnstoðir skattkerfisins með því að fækka ívilnandi úrræðum og draga úr hvötum til skattasniðgöngu. Auk þess mun ríkisstjórnin endurskoða gjaldtöku vegna nýtingar á auðlindum landsins og tryggja að hún byggist á sjálfbærum og réttlátum auðlindagjöldum. Grunnstef fyrirhugaðra breytinga er að styrkja tekjuhlið ríkissjóðs án þess að auka álögur á almenning.  

Forseti. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um breytingu á andlagi veiðigjalda, þar sem markmiðið er að framkvæmd gjaldtökunnar sé í samræmi við tilgang laganna um að fiskverð í reiknistofni endurspegli raunverulegt aflaverðmæti. Einnig er fyrirhuguð upptaka gjalds fyrir aðgang að ferðamannastöðum landsins. Mun það gilda jafnt um erlenda ferðamenn sem hingað koma og okkur sem hér erum búsett. Unnið er að útfærslu á gjaldinu og stefnt að gildistöku um mitt næsta ár. Til mikils er að vinna að koma á virkri aðgangsstýringu að viðkæmum og takmörkuðum auðlindum okkar. Um leið færist sanngjarn arður af nýtingu þeirra til þjóðarinnar, bæði til uppbyggingar staðanna sjálfra og annarra innviða. Aðhald í rekstri ríkisins, umbætur og hagræðing eru verkefni án enda. Þess vegna verða þau verkefni á dagskrá ríkisstjórnarinnar allt kjörtímabilið.

Forseti. Í greinargerð þingsályktunarinnar er ítarlega gerð grein fyrir horfum í fjármálum ríkissjóðs og hins opinbera, ráðstöfunum á tekju- og gjaldahlið og áhættuþáttum sem varða opinber fjármál. Ég legg til að málinu verði vísað til fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.