156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:14]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. ráðherra til hamingju með að leggja þetta mál fram. En nú er það þannig að það sem hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn leggja fram hefur áhrif á almenning í landinu og fyrirtækin í landinu. Það voru mjög skýr skilaboð sem komu í fjármálastefnu sem voru kynnt á fimmtudaginn síðasta, mjög skýr. Nú ætla ég að lesa upp úr því, með leyfi forseta:

„Hægt hefur á vexti efnahagsumsvifa undanfarna ársfjórðunga og samhliða hafa tekjustofnarnir vaxið hægar en á uppgangstímum síðustu ára. Við mótun skattstefnu þarf að huga að fjölmörgum þáttum, þar sem breytingar hafa bein áhrif á efnahag heimila og rekstrarskilyrði fyrirtækja. Mikilvægt er að stefnan stuðli að skilvirku og réttlátu skattkerfi og styðji um leið við hagvaxtargetu þjóðarbúsins og efnahagslegan stöðugleika.

Tækifæri eru til staðar til að nýta núverandi tekjustofna til frekari tekjuöflunar, án þess þó að leggja meiri álögur á einstaklinga …“

Án þess þó. Þetta er á fimmtudegi, virðulegi forseti, í síðustu viku. Kl. 8:15 á mánudegi þá koma menn hins vegar með skattahækkanir á almenning. Hvað er það að afnema samsköttun annað en skattahækkun? Það er ekkert annað. Hvað er samsköttun? Þá er tekið mið af raunverulegum tekjum heimilisins þannig að ef annar aðilinn fer í fæðingarorlof, nám eða er af einhverjum ástæðum er með lægri laun heldur en hinn, er tekið tillit til þess. Í hv. fjárlaganefnd sögðu starfsmenn fjármálaráðuneytisins frá því að þessi aðgerð myndi skila nokkrum milljörðum. Ég spyr, eins og ég held allir spyrji: Af hverju var það sem skrifað var á fimmtudegi svikið á mánudegi?