156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:17]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans spurningu. Nú leggur hann einhvern undarlegan skilning í umræðuna um tækifæri. Fyrir mér er það að tækifæri séu til staðar til að auka skilvirkni skattkerfisins án þess að hækka álögur ekki það sama og loforð um að sköttum verði ekki breytt eða þeir leggist einhvern veginn með öðrum hætti en þeir hafa gert hingað til.

Svo vil ég kannski líka bara taka fram að þessir milljarðar sem hv. þingmaður nefnir eru sem sagt 2,5 að mati ríkisskattstjóra. Eins og ég fór yfir áðan þá hefur verið farið yfir það hvernig þessar álögur dreifast á tekjudreifinguna. Það er með nokkrum ólíkindum hvernig hægt er að draga þá ályktun, eins og hv. þingmaður gerir, að hér sé um einhvers konar skatta á barnafjölskyldur að ræða eða þá sem minnst mega sín. Það er alls ekki tilfellið.