156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:18]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hæstv. ráðherra hafi verið að gangast við því að þeir séu búnir að svíkja það sem þeir sögðu, skrifuðu niður, kynntu með pompi og prakt á fimmtudaginn, um að leggja ekki meiri álögur á einstaklinga. Ég held að þetta hafi verið mjög skýrt. Þetta eru 2,5 milljarðar á heimilin. Hvað annað, virðulegi forseti, er hér í fjármálastefnunni sem ekkert er að marka? Hæstv. ráðherra er búinn að gangast við því að hann og ríkisstjórnin ætla að hækka skattana, tekjuskatta á heimilin í landinu, um 2,5 milljarða. Loksins kemur hæstv. ráðherra og upplýsir það því að hann var spurður þráfaldlega í síðustu viku um það hvernig hann ætlaði að fara fram með þessum hætti án þess að það myndi hækka álögur á einstaklinga. Nú vitum við það. Það var ekkert að marka það sem kynnt var í síðustu viku. Það er ekkert að marka það þegar hæstv. ríkisstjórn segir: Við ætlum ekki að hækka álögur á einstaklinga.

Nú er ég ekki farinn út í náttúrupassann, virðulegi forseti, sem leggst á alla, sérstakur skattur á alla. Við þekkjum þá skatta og við vitum hverju þeir skila.

Virðulegi forseti. Ég vil alla vega nota tækifærið vegna þess að þá er þetta staðfest, það á að hækka álögur á einstaklinga og við erum komin hér með alla vega 2,5 milljarða. Þeir eru fleiri. En ég bið hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra að hætta að segja í viðtölum, eins og hann hefur gert, að það eigi ekki að hækka álögur á einstaklinga. Þetta liggur alveg skýrt fyrir. Það á að hækka skatta á heimilin í landinu hjá þessari vinstri stjórn.