fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þann 20. febrúar sendi ég fyrirspurn á hæstv. heilbrigðisráðherra um hverjir nýttu heilbrigðisþjónustu á Íslandi og þann 19. mars óskar ráðherra eftir fresti til að svara. Svo gerist það í gær að ég fæ svar, ef svar skyldi kalla. Svarið var efnislega þannig að upplýsingarnar lægju ekki fyrir. Fyrirspurnin sneri að því hverjir nota heilbrigðiskerfið á Íslandi. Hæstv. heilbrigðisráðherra svaraði því að hún hefði einungis upplýsingar um hvort sjúkratryggðir eða ekki sjúkratryggðir nýttu heilbrigðiskerfið. Þess vegna spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Hvernig getur fjármálaáætlun á einhvern hátt verið nákvæm þegar þið hafið ekki hugmynd um það hverjir nota innviðina á Íslandi? Til að mynda koma hingað ferðamenn og það hefur verið gríðarleg aukning á fjölda ferðamanna. Vissulega eru þeir sennilega flestir sjúkratryggðir en við þurfum engu að síður að vita hversu margir er áætlað að komi og hversu margir þurfa að nýta þjónustuna til að geta veitt þjónustuna. Svo eru það hælisleitendur og þeir sem hafa fengið hér alþjóðlega vernd og við höfum skuldbundið okkur til að greiða heilbrigðisþjónustu fyrir stóran hluta þeirra. Hvernig getum við ekki vitað hversu hátt hlutfall þeirra er að nýta þjónustuna? Þetta er bara með ólíkindum.
Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann telji það ásættanlega áætlanagerð hjá heilbrigðisráðherra eða hvort hann telji hreinlega að hún fari ekki með rétt mál og þekki ekki þessar upplýsingar.