fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar ágætu spurningu. Nú verð ég að viðurkenna að þekking mín á skráningarfyrirkomulagi heilbrigðiskerfisins er frekar yfirborðskennd en almennt má taka undir það sjónarmið hennar að spár eru auðvitað — eins og einhver sagði einhvern tímann, það er erfitt að spá, sérstaklega um framtíðina. Þetta byggir auðvitað á áætlunum sem við höfum í sjálfu sér reynslu af hvernig hafa þróast og öll þau gögn sem eru lögð til grundvallar við gerð fjármálaáætlunar eru metin út frá þróun útgjaldaliða í gegnum tíðina eða með því að byggja á ytri forsendum, m.a. frá Hagstofu Íslands. Þegar kemur síðan að þeirri almennu athugasemd sem lesa má út úr spurningu hv. þingmanns þá held ég að við getum tekið undir að skráning og utanumhald gagna hjá hinu opinbera þarf að batna.