fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langaði eiginlega bara að taka þetta á næsta skref af því að við vitum að hér hefur verið gríðarleg fjölgun. Það eru ekki bara hælisleitendur eða ferðamenn, það er líka erlent vinnuafl. Þetta eru tugir þúsunda aðila. Þess vegna er þetta ekki bara í heilbrigðiskerfinu, þetta er í menntakerfinu, þetta er í öllum helstu dýrustu kerfunum okkar. Mig langar til að spyrja: Er stór hluti af fjármálaáætlun næsta árs, sparnaður þess, er það af því að þið eruð að gera ráð fyrir fækkun í erlendu vinnuafli, hælisleitendum, einhverjum þessara hópa, eða er ekki tekið tillit til þess í kerfunum hvernig þessir hópar munu nýta innviðina?