156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka síðari spurningu hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur. Svarið varðandi áætlunina er nei, það er ekki gert ráð fyrir neinni fækkun. Aðhaldið er ekki þaðan komið, þær tölur eru ekki þaðan komnar. Varðandi síðan þróunina áfram, fyrir þá sem hafa lesið fjármálaáætlun af athygli, sem ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi gert, þá byggir hún á hagspá Hagstofu Íslands. Sú hagspá gerir ekki ráð fyrir fjölgun á erlendu vinnuafli á komandi misserum. Það kemur aðeins á óvart í ljósi þess að mannfjöldadeild Hagstofunnar gerir ráð fyrir fólksfjölgun. Þarna fara því álit þessara tveggja deilda ekki fyllilega saman. Hins vegar held ég að það sé ákaflega erfitt að spá fyrir um það nákvæmlega hvernig þessi þróun muni verða. Þetta hefur verið einn af þessum liðum sem hefur verið mjög erfitt að spá fyrir um, hann hefur hoppað upp og niður á undanförnum árum. Þannig að ef við erum að velta fyrir okkur hvar svona veikleikar í almennum hagspám á Íslandi eru þá eru þeir ekki síst þarna. Þannig að spurningin er vissulega góð.