156. löggjafarþing — 25. fundur, 3. apr. 2025.
fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
264. mál
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir ágæta yfirferð hér á fjármálaáætlun fyrir árið 2026–2030. Ég er bara með eina tiltölulega einfalda fyrirspurn til hæstv. ráðherra. Telur ráðherrann að þingsályktunartillaga um fjármálaáætlun fyrir tímabilið 2026–2030 standist lög um opinber fjármál, nr. 123/2015, einkum varðandi gegnsæi og sýnileika, m.a. um áherslur ríkisstjórnarinnar næstu árin?