fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þetta greinargóða og skýra svar en í kjölfarið langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann geri sér grein fyrir því að búið er að fella út úr fjármálaáætlun öll mælanleg markmið og mælikvarða fyrir öll málefnasvið fjármálaáætlunar. Aðeins stendur eftir umfjöllun um fjárhagsramma málefnasviðanna. Hvernig á þingið að geta metið og tekið afstöðu til markmiða næstu ára innan málefnasviðanna ef þau koma ekki fram? Þá vekur athygli að það er búið að stytta verulega umfjöllun um starfsemi innan málasviðanna og helstu áherslur í samræmi við þau fjárhæðamörk sem fram koma í gildandi fjármálaáætlun. Þetta, virðulegur forseti, er ekki í þeirri fjármálaáætlun sem lögð er fram hér í dag, ólíkt því sem verið hefur. Því er ómögulegt fyrir okkur þingmenn að reyna að glöggva okkur á áætluninni og ég sé bara ekki hvernig hún stenst lög um opinber fjármál. Því spyr ég: Ætlar ráðherra að leggja þetta fram með þessum hætti eða kalla þetta inn og gera þær breytingar sem þörf er á til að uppfylla ákvæði laganna eins og ég kom hér inn á áðan?