156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir að vekja athygli á því að þessir mælikvarðar eru ekki í þessari áætlun. Þeim ber að skila samkvæmt lögunum og hugmyndin er sú að þeir komi með ársskýrslum ráðherra. Ástæðan er sú að það er skilvirkari leið til þess að loka þeim hring sem eru áætlanir ráðherra annars vegar og mælikvarðar á árangur þeirra hins vegar. Markmið fjármálaáætlunarinnar sjálfrar er að gefa hugmynd um rekstur ríkisins, grófar áætlanir um fjárhagslegan rekstur ríkisins á tímabili áætlunarinnar. Það að þessum mælikvörðum hafi verið slengt inn í hana er ákvörðun einhverra fyrirrennara minna en það að þeir hafi verið fluttir inn í skil á ársskýrslum ráðuneytanna er einmitt til þess að bæta ákvarðanatökuna í ráðuneytunum.