156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:31]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu og óska honum til hamingju með sína fyrstu fjármálaáætlun og vona að honum vegni vel með hana og að hún muni gagnast. Því langaði mig einmitt að spyrja út í atriði sem var lögð mikil áhersla á í þessari fjármálaáætlun og mér finnst hljóma eins og músík í mínum eyrum, að það sé mikilvægt hér að veita aðhald og hagræðingu í ríkisrekstri og að greiða niður skuldir og að þetta styrki efnahag þjóðarinnar og geri okkur tilbúin til að taka á móti óvæntum áföllum, sem hafa því miður verið fullalgeng og tíð undanfarinn áratug ef svo má segja. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvar tillögur hæstv. ríkisstjórnar og Viðreisnar er að finna í þessari fjármálaáætlun um alvöruhagræðingu, t.d. að greiða hraðar inn á skuldir með losun eigna. Eru engar fyrirætlanir hér að finna, fyrir utan söluna á Íslandsbanka sem hefur nú staðið fulllengi til en kemur vonandi fljótt til framkvæmda, eru engar aðrar eignir sem hæstv. ríkisstjórn sér til að losa um til að greiða niður skuldir og lækka vaxtakostnað ríkissjóðs? Vaxtakostnað ríkissjóðs sem er einn af langstærstu útgjaldaliðum okkar og var einmitt það sem seðlabankastjóri kom fram með á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar á dögunum, að þetta væri það mikilvægasta til að styrkja viðnámsþrótt íslensks samfélags. Ég sakna þessara hugmynda í þessari fjármálaáætlun.