156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans ágætu spurningu. Nú er það þannig að megináherslan í þessari áætlun er á þróun hins reglubundna reksturs ríkissjóðs og tekjur sem eru svona tilfallandi munu, eins og hv. þingmaður veit, samkvæmt áætlun um breytingar á lögum um opinber fjármál verða notaðar einmitt til þess að lækka skuldir. Það er hins vegar þannig að það að gera áætlanir um slíka eignasölu tekur tíma. Það þarf að undirbúa hana og eins og áralöng grýtt vegferð undangenginna ríkisstjórna í sölunni á Íslandsbanka sýnir þá er það sýnd veiði en ekki gefin.