fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég veit ekki betur en vaxtagjöld séu einmitt einn stærsti kostnaðurinn af reglulegum rekstri ríkisins og spyr því hæstv. ráðherra aftur: Eru engin áform þá um að hefja undirbúning að slíkri um sölu til að lækka þennan reglubundna kostnað ríkissjóðs? Langar mig þá að spyrja sérstaklega út í nokkrar eignir eins og Isavia, Landsbankann, Íslandspóst og að minnka umsvif Ríkisútvarpsins, sem gætu verið góðir kostir allt saman í því að umbreyta eignum í fjármuni til að lækka skuldir ríkissjóðs og um leið draga úr áhættunni.
Mig langar að taka Isavia sérstaklega hér fyrir, hvort hæstv. ráðherra hafi einhver áform um að losa um kannski minnihlutaeign í Isavia þannig að það væri hægt að umbreyta þeirri eign í annars vegar innviðaframkvæmdir, mögulega að setja þá fjármuni inn í nýtt innviðafélag sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að stofna síðar á þessu ári og ég fagna, og hins vegar í að greiða niður skuldir og draga þá úr áhættunni en um leið svara kalli félagsins sjálfs, stjórnenda og fráfarandi stjórnar félagsins um það að standa með þeirri uppbyggingu sem á sér stað á Keflavíkurflugvelli, sem er mikilvæg fyrir áframhaldandi hagvöxt í landinu og þróun íslensks samfélags, og til að fá fagfjárfesta inn til þess að hjálpa félaginu í þessum stóru framkvæmdum og styðja við það. Félagið hefur sagt það sjálft að það þarf að fara að fá utanaðkomandi þekkingu inn í uppbygginguna.
Ég spyr þá kannski að lokum, þar sem fráfarandi stjórn félagsins sagði að metnaðarfull framkvæmdaáætlun félagsins muni ekki standast nema með auknu hlutafé: Mun hæstv. ríkisstjórn standa með félaginu í því og þá á hvorn háttinn, með því að setja inn hlutafé frá ríkissjóði eða fá fagfjárfesta að til að tryggja þetta hlutafé?