156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir þessa spurningu. Það er auðvitað athyglisvert hversu mörgum góðum hugmyndum þingmenn virðast búa yfir sem ekki komust til framkvæmda meðan þeir höfðu meiri áhrif á ákvarðanatökuna en ég tek þær samt sem góðar og gildar. Varðandi þær hugmyndir sem hv. þingmaður nefnir sérstaklega þá er engin þeirra til skoðunar. Það þýðir þó ekki að það séu ekki töluverð tækifæri til að losa eignir ríkisins og er þar verið að horfa til mjög margra þátta er lúta að m.a. fasteignum og landi sem ríkið á og hvort tveggja er ekki bein þörf fyrir né heldur skapa verðmæti í dag, sem á ekki við um þau félög sem hv. þingmaður nefndi. Í öllum tilfellum þarf ríkið auðvitað að gæta hagsmuna síns sem eiganda við ákvarðanir um það hvar félögum er best fyrir komið. Varðandi fjárfestingar og frekari uppbyggingu á málefnasviðum einstakra félaga þá á eftir að taka ákvarðanir um það.