156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:38]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn fyrir að koma með þetta hér fram. Á þessum stutta tíma sem við erum búin að vera hér í dag er staðfest að það sem var sagt fyrir helgi, það sem var sagt í viðtölum um að það ætti ekki að hækka skatta á almenning, er rangt. Nú er þessi hæstv. ríkisstjórn ekki búin að vera til lengi en það er mér til efs að margar hæstv. ríkisstjórnir hafi haldið jafn marga blaðamannafundi á jafn skömmum tíma og hæstv. ríkisstjórn, af minna tilefni eða engu tilefni. Þetta er svona blaðamannafundaríkisstjórn. Hún hefur stært sig mjög mikið af því sem hún hefur gert á þeim tíma sem hún hefur verið til. En það er ekki sannfærandi, virðulegi forseti, að þessi ríkisstjórn, sem talar einstaklega vel um þessa ríkisstjórn við öll möguleg og ómöguleg tækifæri og sýnir alveg fádæma hugvit í því að finna leiðir til að hrósa sjálfri sér, skuli ekki geta staðið við yfirlýsingar sínar í nokkra daga. Hæstv. ríkisstjórn lofaði því á fimmtudaginn í síðustu viku að hækka ekki álögur á einstaklinga. Þremur dögum seinna kom í ljós að þessi ríkisstjórn svíkur það. Hæstv. ráðherra bar það í andsvari hér áðan upp á mig og væntanlega alla þá sem eru að fylgjast með þessu að það sé vanþekking þegar við tölum um það að skattahækkun upp á 2.500 milljónir sé skattahækkun á heimilin í landinu. Nú er það bara þannig, virðulegi forseti, að fólkinu sem borgar þessa skattahækkun dugar lítt þessi útúrsnúningur hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar.

Bara til þess að við drögum aðeins saman hvers konar skattahækkun þetta er: Nú er það þannig ef tveir einstaklingar eru með samsköttun, sem allir eru með, og annar aðilinn er með hærri tekjur en hinn þá jafnast þetta út. Nú er, held ég, sjaldgæft að báðir aðilar séu með sömu tekjur en svo koma líka upp aðstæður þar sem þetta nýtist virkilega vel. Tökum dæmi sem hæstv. ríkisstjórn þekkir vel vegna þess að hinum megin við Vonarstrætið stýra þeir Reykjavíkurborg. Hvað gerist t.d. ef ungt barnafólk fær ekki aðgang að leikskólaplássi fyrir barnið sitt? Það getur þýtt það einfaldlega að annar aðilinn geti unnið minna, haft minni tekjur og þá ertu með skattkerfið sem hjálpar til við að lina þrautir fjölskyldunnar í Reykjavík sem fær ekki leikskólapláss. Þetta verður tekið af, virðulegur forseti, og 2.500 milljónir, sem hæstv. ráðherra benti á að væri betri nálgun heldur en 2,5 milljarðar, munu koma niður á þessu fólki, auðvitað ekki bara því fólki sem kemst ekki með barnið sitt á leikskóla heldur öllum öðrum.

En þetta er ekki bara það, virðulegi forseti. Við erum hér líka að sjá að fyrir helgi þá er með blaðamannafundi, pompi og prakt og flottum umbúðum farið yfir það að nú er komin ríkisstjórn sem ætlar að vinna svo vel. Hún er með ákveðin grunngildi sem eru skrifuð út í fjármálastefnu. Með leyfi forseta ætla ég að fara aðeins yfir þau. Í viðauka eitt í fjármálastefnu eru fjármálareglur, grunngildi og töluleg skilyrði. Þar er m.a. nokkuð sem heitir varfærni:

„Varfærni skal ríkja til lengri tíma í fjármálum hins opinbera, þ.e. að vanda þurfi til undirbúnings ákvarðana sem þurfa að vera vel ígrundaðar og studdar af heildstæðri áhættugreiningu og mati á áhrifum til skemmri og lengri tíma. Því beri að forðast ákvarðanir sem hætt er við að geti haft fyrirséðar eða ófyrirséðar neikvæðar afleiðingar í samfélagslegu tilliti.“

Það er annar kafli um stöðugleika, annar um festu. Um festu segir, til að skrifa þetta almennilega út:

„Með öðrum orðum beri að forðast óvæntar og fyrirvaralitlar breytingar. Framfylgd fjármálastefnu þarf að stuðla að trúverðugleika og ákvarðanir um frávik frá markaðri stefnu þurfa að vera málefnalegar og vel ígrundaðar. Þar með skapast betri forsendur fyrir því að áætlanir og ákvarðanir standist og að þær leiði til bættrar meðferðar opinberra fjármuna og farsældar fyrir samfélagið í heild.“

Svo mörg voru þau orð, virðulegi forseti. En hvað erum við að horfa upp á hér þessa dagana? Nú geta menn haft allar skoðanir á því hvort það eigi að hækka eða lækka skatta en það getur enginn haldið því fram, virðulegi forseti, að þær breytingar sem eru boðaðar nú — og á að keyra á miklum hraða í gegn, sem hafa áhrif ekki bara á fyrirtækin heldur samfélögin og sérstaklega samfélögin í hinum dreifðu byggðum — séu vel ígrundaðar. Reyndar er það þannig að menn eru ekki einu sinni tilbúnir til að láta hagsmunaaðila fá þær upplýsingar sem liggja til grundvallar. Það er ekki bara að á þessum örskamma tíma hafi hæstv. ríkisstjórn ákveðið að svíkja það sem þeir sögðu, að leggja ekki meiri álögur á einstaklingana, heldur brjóta þeir allar þær reglur sem þeir töluðu um að þeir ætluðu að vinna eftir fyrir nokkrum dögum síðan.

Við munum ræða veiðigjöldin, sem mann grunar að séu fyrst og fremst komin vegna vandræðagangs í ríkisstjórninni, til að draga athygli frá henni og fara að tala um eitthvað annað því að þetta er unnið með þeim hætti. Sleppum því, förum bara yfir í náttúrupassann sem við héldum öll að myndi ekki ganga aftur. Hvað eru menn að tala um þar? Menn eru að tala um auðlindagjald fyrir fólkið í landinu til að njóta náttúru landsins. Við erum að tala um það að Íslendingar eiga að borga sérstakan skatt til þess að fá að njóta Íslands. Nú er ekki hægt að setja það í peninga hvað við erum lánsöm að búa á Íslandi og lánsöm að geta gengið að náttúrunni okkar en þessari vinstri stjórn dettur það í hug að þessi lífsgæði okkar séu svo mikil að það þurfi að skattleggja þau sérstaklega.

Virðulegi forseti. Maður hefur séð ýmislegt í gegnum tíðina en þetta er eitthvað alveg nýtt. Það á ekki og það er ekki réttlátt, það er ekki eðlilegt að skattleggja Íslendinga sérstaklega fyrir það að búa á Íslandi og njóta náttúrunnar. Það er algjörlega fráleitt, virðulegi forseti. Við höfum verið að fjármagna, og ég gerði það svo sannarlega í mínu embætti, uppbyggingu á bílastæðum og salernisaðstöðu og ýmsu öðru með því að fólk borgi bara þegar það leggur í stæðin og notar þessa aðstöðu. Tekjurnar sem eru notaðar í þessa uppbyggingu jukust um mörg hundruð milljónir. Þetta er allt annað. Þetta er bara almenn skattlagning. Ég get lofað ykkur því, alveg eins og við höfum séð þegar slík skattlagning hefur farið fram, að hún mun ekki, virðulegur forseti, skila sér í neina uppbyggingu þegar fram líða stundir í því sem henni er ætlað að gera. Þetta er fyrst og fremst hugmynd skattaglaðs fólks í hæstv. ríkisstjórn og síðan er þetta bara sett í einhvern búning. Er það svo, virðulegi forseti, er í alvöru einhver hv. þingmaður hér inni sem ætlar að standa fyrir framan kjósendur, landsmenn, og segja: Það er sanngjarnt og eðlilegt að skattleggja þig og ykkur sérstaklega fyrir það að búa á Íslandi og fá að njóta náttúrunnar. Er það orðið einhvers konar skattstofn? Já, segir þessi ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn ætlar að fara þá leið og þessi ríkisstjórn hefur ákveðið að svíkja það sem hún lofaði fyrir helgi þegar kemur að skattlagningu á almenning. Það vantar ekkert orðskrúðið þegar kemur að röksemdafærslunni (Forseti hringir.) en þegar grannt er skoðað, og þarf ekki að skoða grannt, (Forseti hringir.) þá stenst þessi röksemdafærsla ekki nokkra einustu skoðun.