fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Það var eitt atriði sérstaklega sem hv. þingmaður kom inn á sem mig langaði kannski að fá aðeins fyllri mynd af. Það voru hér fyrir nokkrum kjörtímabilum síðan uppi áform um einmitt náttúrupassanálgunina, eins og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni. Viðbrögðin við þeirri nálgun á þeim tíma voru snúin pólitískt, ef ég man rétt, svo vægt sé til orða tekið. Metur hv. þingmaður það sem svo að það sé eitthvað í umhverfinu núna sem sé líklegt til þess að skapa meiri sátt um þessa nálgun heldur en þá? Ég verð að viðurkenna að þegar ég sá þessi áform ríkisstjórnarinnar fyrst núna þá kom mér til hugar að ekki þekki þau söguna vel. Ef hv. þingmaður myndi kannski aðeins fylla inn í þessa mynd af því að ef ég man rétt var hv. þingmaður hæstv. ráðherra á þeim tíma — nei, afsakið, það var misminni hjá mér — sem þessi mál voru rædd síðast, en hvað það helst var, fyrir utan auðvitað þá beinu punkta sem hv. þingmaður nefndi áðan, sem í raun gerði það að verkum að ég held að það sé samkvæmt minni óhætt að segja að það hafi verið næstum því fullkomin sátt um að hverfa frá þessum áformum á sínum tíma, sama hvar í stjórnmálum menn stóðu.