156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:50]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann man rétt að það var næstum því fullkomin sátt um að hætta við þessar hugmyndir. Hugmyndin gengur út á þetta, nálgunin er þessi: Við erum með átroðning og þar með eftirspurn eftir því á sérstaklega ákveðnum svæðum á landinu og þú þarft að fara í einhverja uppbyggingu þar til að vernda náttúruna og gera þetta boðlegt. Þá kom þessi hugmynd: Setjum bara almenna skattlagningu á alla því að þú getur ekki bundið þetta við útlendingana. Það sér hver maður að það er hvorki góð leið né sanngjörn og hún mun ekki skila því að fara í uppbygginguna. Við þekkjum það af öðrum slíkum sköttum, ofanflóðagjaldið er gott dæmi um það þar sem er mikil skuld þrátt fyrir að vera nú með góðan ásetning. Ég hugsa að síðasta ríkisstjórn hafi verið sú sem stóð sig best í að skila því en engin ríkisstjórn hefur staðið sig þannig að markmiðum hafi verið náð.

Ég verð að viðurkenna að ég átti erfitt með að trúa því þegar ég sá þetta vegna þess að menn hafa byggt upp sértekjur og ég held að bara í mínu ráðuneyti hafi sértekjur aukist um nokkur hundruð milljónir á ári, bara á þeim tíma sem ég var þar, sem þýddi uppbyggingu víðs vegar um landið. Þá borga þeir sem eru að nota viðkomandi bílastæði o.s.frv. En í þessu tilfelli ætla menn að setja skatt á alla og það skiptir engu máli hvort þú notar náttúruna einhvern tímann eða ekki. Röksemdafærslan er að þetta sé auðlindagjald, af því að náttúran okkar er auðlind. Er ekki loftið okkar, súrefni, auðlind líka? Erum við ekki að anda að okkur miklu betra lofti alls staðar á landinu heldur en í flestum öðrum löndum? Menn hljóta þá að huga að því, þessi ríkisstjórn, að skattleggja það sérstaklega.

Þó að þetta sé mjög góð spurning hjá hv. þingmanni þá er það ótrúlega ósanngjarnt af hv. þingmanni, og ég veit að hann ætlast ekki til þess, að fá mig til að reyna að útskýra af hverju í ósköpunum mönnum dettur þetta í hug. En þetta er fyrst og fremst skattagleði, alveg eins og menn segja: Við erum bara að setja (Forseti hringir.) 2.500 milljónir á einstaklingana. Það er ekki skattahækkun, það eru bara 2.500 milljónir.