156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni sjónarmið er varða Betri samgöngur ohf. og ég veit að hv. þingmaður þekkir það fyrirkomulag og þá framkvæmd alla vel frá fyrri störfum. Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann út í er afstaða hans gagnvart þeirri nálgun sem nú er viðhöfð í umræðu um hækkun veiðigjalda þar sem, svona í efnislegri einföldun til að stytta mál mitt, er sagt: Heyrðu, hér verða lagðir á til viðbótar 10 milljarðar og þeim verður í meginatriðum varið til uppbyggingar vegakerfis úti á landi. Það er tónninn sem hefur verið sleginn. Í tilfelli Betri samgangna ohf. var m.a. farin sú leið að afhenda eignir ríkissjóðs, í þessu tilviki mjög verðmætt land, Keldnalandið, inn í þetta opinbera hlutafélag, Betri samgöngur ohf., til uppbyggingar samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Mig langar til að spyrja hv. þingmann út í afstöðu hans út frá sanngirnissjónarmiðum gagnvart þessari mismunandi nálgun á höfuðborg og landsbyggð og hvort hv. þingmaður þekki til að Samfylkingarfélög á landsbyggðinni hafi haft skoðun, af því að nú er útgerð að um 80% hluta til stunduð á landsbyggðinni, á þessari mismunandi nálgun á uppbyggingu á landsbyggðinni annars vegar og höfuðborgarsvæðinu hins vegar.