156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:05]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu. Ég hef ekki farið í grafgötur með það að ég styð hækkun veiðigjalda. Þau eru löngu tímabær, sú hækkun, og í raun er ekki verið að hækka þau meira en svo að þau voru bara svipuð að núvirði fyrir meira en tíu árum. Mér finnst bara gott að þau séu nýtt til þess að fjármagna þá rösklegu aukningu sem er í framlögum til samgöngumála og Vegagerðarinnar, sérstaklega með landsbyggðina í huga. Allir sem hafa keyrt vegina hringinn í kringum landið átta sig á því að þetta er ein af vanrækslusyndum síðustu ríkisstjórnar og raunar ríkisstjórna. (Gripið fram í.)

Nálgunin varðandi Betri samgöngur er að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkissjóður leggja fram ákveðið framlag sem sátt er um til að fjármagna það. Það er rétt að Keldnalandið og hugsanlega aðrar lóðir og lönd á höfuðborgarsvæðinu verða nýtt til að fjármagna hluta en hluti verður fjármagnaður með svokölluðum umferðar- og flýtigjöldum. Um þetta er býsna breið sátt í pólitíkinni, í ríkisstjórninni sem hér var og hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að það þarf að ráðast í átak í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins til þess að umferðin gangi betur og efla hana á alla lund.

Á sama hátt vonast ég til þess að það náðist breið sátt um stofnun innviðafélags til að fjármagna jarðgangaáætlun og önnur stór verkefni á landsbyggðinni. Það mun kalla á veggjöld en líka beina innspýtingu úr ríkissjóði og af samgönguáætlun. Ég hef ekki heyrt í því sambandi talað um að sveitarfélögin komi með beinum hætti að fjármögnun þessara verkefna. En ég vonast til jafn breiðrar sáttar um þessa nálgun til að efla samgöngumál á landsbyggðinni (Forseti hringir.) eins og náðist um Betri samgöngur og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.