fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hv. þingmaður talaði um eiginlega allt annað en það sem ég spurði um en það er eitthvað sem mun væntanlega ágerast eftir því sem tíminn líður, þegar æfingin verður meiri hérna. Þetta er góð byrjun. Ég ætla að vera mjög afmarkaður í seinni tilraun minni: Hver er afstaða hv. þingmanns til þess að í tilfelli Betri samgangna þá leggi ríkissjóður til verðmæta eign til þeirrar uppbyggingar en í því tilviki sem nú er rætt um, að tengja hækkuð veiðigjöld við framkvæmdir á landsbyggðinni, þá sé í raun verið að hækka skatt sem að meginhluta fellur til á landsbyggðinni til að fara í framkvæmdir þar? Það er þessi prinsippmunur og nálgun sem ég er að spyrja hv. þingmann út í; afstöðu hans gagnvart því að ríkið afhendi eignir inn til uppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu en leggi skatt á landsbyggðina til að bæta í framkvæmdahraðann þar, sem allir eru sammála um að þörf er á en það var ekki spurningin. Það er bara þetta prinsipp, afhending eigna í Betri samgöngur ohf., hækkuð skattlagning gagnvart framkvæmdum á landsbyggðinni.