156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:09]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

(Forseti (BH): Ég bið hv. þingmann um að bíða og víkja úr pontu á meðan ég klára kynningu.)

Hæstv. forseti. Ég biðst velvirðingar. Mér lá á í pontuna til þess að halda því til haga að veiðigjöld eru afnotagjöld af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Ég bara ítreka að mér finnst fara vel á því að það svigrúm sem verður til með eðlilegri innheimtu veiðigjalda sé nýtt, m.a. til landsbyggðarinnar, en veiðigjöldin eru raunar ekki markaður tekjustofn þó að þau skapi það svigrúm að bæta í varðandi samgöngumálin sem mun nýtast landsbyggðinni. Ég hafði samúð með því að fjármálaráðuneytið og ríkið hafi spilað út Keldnalandinu og þróun þess í tengslum við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins vegna þess að ríkið hafði ekki svigrúm til að koma með bein fjárframlög til að koma inn í fjármögnun á samgöngumsáttmálanum. Í raun má segja að tilkoma borgarlínu og brúar yfir Elliðavog geri uppbyggingu þessa svæðis að veruleika. Þannig að það er ekki óeðlilegt að samgöngursáttmálinn njóti þess eða öllu heldur að innviðirnir og fjármögnun þeirra sem gera uppbyggingu á Keldum mögulega séu nýttir til að fjármagna þá hina sömu innviði. Allir sem hafa keyrt Miklubraut og Ártúnsbrekku að morgni eða síðdegis átta sig á að það er ekki hægt að bæta við heilum borgarhluta á Keldum eða í Blikastaðalandi í Mosfellsbæ án þess að leysa umferðina á annan hátt en að allir komi á einkabíl niður Ártúnsbrekku. Þess vegna hanga þessir hlutir saman, bæði varðandi fjármögnun, skipulagshugsun og útfærslu.