156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:11]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og frábið mér að það sé sérstaklega mikil sátt um samgöngusáttmálann þegar kemur að Reykjavík. Kjörnir fulltrúar í Reykjavík, þ.m.t. sá sem hér er, hafa miklar athugasemdir við það og við skulum ekki ræða Keldnalandið ógrátandi. En ég ætla ekki að fara út í það.

Hv. þingmaður kemur réttilega hingað inn og segir: Við þurfum að hafa áhyggjur. Við vitum hvernig ytra umhverfið er. Við sjáum hvað er að gerast í heiminum og við erum ekki eyland þegar kemur að því, útflutningsþjóðin Ísland sem byggir afkomu sína að stórum hluta á því að flytja út fisk og flytja inn ferðamenn. Ég hef ekki alveg séð það að í þessum áætlunum sé gert ráð fyrir mikilli varkárni hvað þetta varðar, en látum það liggja milli hluta. En nákvæmlega út af þessari röksemdafærslu, þar sem ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni, er þá skynsamlegt, á sama tíma og hæstv. utanríkisráðherra segir að tollahækkanir Trumps forseta geti orðið högg fyrir sjávarútveginn, að hækka skatta á sjávarútveginn? Er skynsamlegt, þegar við vitum að svona ólgutímabil getur haft og mun með einhverjum hætti hafa neikvæð áhrif, spurning hversu mikil, á kaupmátt fólks, sem þýðir að það dregur úr ferðalögum, að leggja sérstaka skatta á ferðaþjónustuna? Bara nákvæmlega út frá þeirri röksemdafærslu sem hv. þingmaður kom inn á, og ég er alveg sammála hv. þingmanni með varkárnina og að horfa til þess. En af því að við erum að horfa á þessa hluti sem eru að gerast núna: Er skynsamlegt að fara með skattahækkanir á þessar tvær atvinnugreinar við þessar aðstæður?